mánudagur, nóvember 13, 2006

bumbujóga

tek ég mig ekki vel út í fyrsta meðgöngujógatímanum? já, ákvað að gefa jóganu séns...þó ég sé nú meira niðri á jörðinni en margar konurnar þarna í dag, með sönginn sinn og stunurnar :) ég var meira svona eins og flóðhestur, titrandi í hnjánum við minnstu áreynslu! ekki eins þokkafull og í þyngdarleysi vatnsins, en meiri slökunar- og öndunarkennsla í jóganu, sem ég held að gagnist svo vel í fæðingum! ég held því ótrauð áfram að finna mitt innra fjall og anda inn í djúpan dal þar, ímynda mér örninn minn fljúgandi hátt á himninum og syngja möntrur í kór með öðrum bumbum...brosandi út í annað :)

1 Ummæli:

Þann 11:53 f.h. , Blogger Ìris sagði...

hihi tetta hljómar skemmtilega :)
gangi tér vel.

knús
***

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim