mánudagur, september 25, 2006

pirringur

#%/&#¨°&$#% nýrnasteinadrasl!!!! urrr! út með þig!

laugardagurinn fór í annað verkjakast og innlögn á meðgöngudeildina...steinninn er e-ð tregur við að hypja sig ;(

þetta er samt allt þess virði og ég myndi gera þetta 100 sinnum aftur fyrir mola...því það er nú takmarkað hægt að gera fyrir mann á meðgöngunni...lyfja- og aðgerðalega séð! ég harka þetta bara af mér...fyrir molann minn! gæti samt þegið allar góðar hugsanir núna...að steinninn fari niður ÁN sársauka og að ekkert komi fyrir gullmolann okkar!

9 Ummæli:

Þann 3:03 e.h. , Blogger Ìris sagði...

tid hafid allar mínar gódu hugsanir og strauma. Trúi á ad tetta fari allt saman vel, bædi fyrir tig og molann ;)
tú ert mega sterk kona! mundu tad. Heyrist ad tetta sé gífurlega sárt.

knús og kossar og kvedjur, út med steininn...!
love,
***

 
Þann 9:09 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég hélt ég hefði sett inn comment en það fór eitthvað út í buskann??
En það er leitt að heyra með steininn.... en við hér fyrir norðan sendum alveg fullt af englum til ykkar sem eru fullfærir um að láta þetta hverfa !!
Hafið það gott mín kæru og góðar kveðjur frá öllum
Freyja

 
Þann 9:32 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Úfff ekki gott. Láttu þér nú batna og vonandi fer þetta nú að verða búið. Ekki gaman að lenda í svona veseni. Þú hugsar allavegana mjög jákvætt og það hlýtur að hjálpa helmikið til...:)
Kveðja, Berglind Rut

 
Þann 9:53 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ hæ langaði bara að kasta á þig kveðju:) og óska ykkur til hamingju með litla bumbukrúttið:) Leitt að heyra með nýrnasteinana, vona að þetta fari að lagast fljótlega og þér fari að lýða betur.
Kveðja frá Svíþjóð:)

 
Þann 2:03 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

hæ þið allar :)
takk fyrir góðar hugsanir! já, ég reyni bara að vera jákvæð! á meðan það er í lagi með mola þá er mér alveg sama um allt annað!
***

 
Þann 12:02 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

.. hæhæ.. ég segi bara "út með kvikindið" :o) sko steininn.. vonandi ferðu að lagast, gæti trúað að þetta væri alveg ferlega sárt! :/ sendi þér alla mína strauma hon

knús og kram
Þorbjörg Inga

 
Þann 4:22 e.h. , Blogger Ìris sagði...

Hæ elskurnar.
Vildi bara spyrja hvernig tid hefdud tad? Vona ad steinninn sé búin ad hundskast út...
Hugsa til ykkar.
Love,
***

 
Þann 2:31 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

hellú þorbjörg :) takk fyrir góðar hugsanir!!!

og hæ elsku íris mín :) fer að blogga bráðum, setja inn bumbumyndir og svona svo það haldi ekki allir að ég dauð úr öllum æðum ;) held að steinninn hafi það bara svo gott þarna hjá mér að hann vilji ekki fara blessaður...
love u 2,
***

 
Þann 3:42 e.h. , Blogger Ìris sagði...

hlakka til ad fá meira blogg og bumbumyndir :)
***

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim