föstudagur, júlí 28, 2006

eintóm hamingja

jæja, þá er það komið á hreint! ef guð lofar (eins og hún móðir mín segir alltaf) þá verðum við óli foreldrar í lok janúar eða byrjun febrúar :)

þetta er það besta sem við höfum nokkurntíman upplifað...en um leið það mest scary! ég hélt einhvernvegin að maður yrði bara óléttur og ekkert með það! en VÁ! allar þær hugsanir sem fljúga í gegnum hugann manns, og áhyggjurnar...man oh man! manni fer nefninlega strax að þykja svo vænt um þetta litla kríli sem vex þarna inni! kannski hjálpar það áhyggjutýpu eins og mér ekki að vinna á kvennadeild þar sem maður heyrir hvern einasta dag um þá hluti sem gætu farið úrskeiðis...og þeir eru sko margir, það get ég sagt ykkur! þannig að mín kona reynir bara að vera raunsæ en vona og biðja alla daga eftir hinu besta! því yfirleitt gengur þetta jú mjög vel :)

óléttan hefur bara farið frekar vel í mig! engin ógleði til að tala um...bara heljarinnar mikil þreyta og skapsveiflur...sem óli er þó bara nokkuð góður í að tækla...hehe! ótrúlegt hvað stutt er í grátinn eða pirringinn ;) hann óli er búinn að vera svo góður við mig! hann eldar og þrífur og ég er hætt að geta talið skiptin sem hann hefur hlaupið út í búð fyrir mig bara af því að mig langaði svo mikið í eitthvað :) þannig að ég er alger prinsessa þessa dagana!

svo erum við að fara í sumarfrí eftir helgina! það verður yndið eina :) okkur var ráðlagt að halda bumbunni frá hitanum á krít (40 gráður hvorki meira né minna) þar sem við íslendingarnir erum ekki vön svoleiðis löguðu! eftir eitt vottorð fengum við endurgreitt og no problemo þannig að afslappelsið mun fara fram á landinu okkar góða! það er sko bara EKKERT verra :)

það eru komnar inn nokkrar myndir inn á MYNDIR 2 albúmið, bæði frá skírninni hann Baldurs dúllukalls og af honum Mola okkar :)

8 Ummæli:

Þann 4:15 e.h. , Blogger Ìris sagði...

Njóttu tess ad vera prinsessa. Og reyndu ad loka eyrum fyrir tví slæma. Bid innilega vel ad heilsa honum óla, heyrist á öllu ad óléttan sé ekki minna ad segja til sín hjá honum og hjá tér ;)
Gott ad tú sért hraust annars og laus vid ógledi og annad tví um líkt. Ìmynda mér ad tad geti verid eitt af tví leidinlegasta...
Njótid ykkar í sumarfríinu ykkar heima med molann í maganum tínum :) Bara einn vinnudagur eftir í fríid...;)

knús frá kaupmannahöfn,
***

 
Þann 4:38 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með mallakút....;0) Hafi það gott í sumarfríinu
Bestu kv Nanna Björk

 
Þann 5:10 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

hæ íris mín :)
já ég nýt þess sko í botn að vera prinsessa!!! skila kveðju frá þér til óla míns sem fer sko ekki varhluta af blessaðir óléttunni :) hann var t.d að kaupa nammi fyrir mig í sjoppunni áðan ;) við ætlum sko þvílíkt að njóta frísins og vonandi verður ekki langt í að við sjáumst sæta mín!
knús
***

og hæ nanna :) gaman að heyra frá þér og takk fyrir hamingjuóskirnar! vona að þið hafið það sem best :)

 
Þann 8:09 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með krílið skötuhjú. Þetta eru frábærar fréttir! Ekkert smá flott og skýr sónarmyndin, þetta verður greinilega skýrt barn;0) Gangi ykkur sem allra best og maður fylgist með.

 
Þann 11:29 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

hæ lilja mín :)
gaman að heyra frá þér! takk fyrir það :) já, þetta verður skýrt barn...amk skírt, hehe! vonandi hefur þú/þið það sem best!!!
***

 
Þann 2:31 e.h. , Blogger Ìris sagði...

Til hamingju med ad vera komin í sumrfrí! njótid tess: )

 
Þann 3:03 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Sæl og blessud bædi tvö (trjú) og innilega til hamingju med bumbuna :) Hafid tad rosa gott og njótid sumarfrísins!!!
Kær kvedja Svala

 
Þann 4:11 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

hæ íris mín :)
já, við ætlum sko að njóta frísins okkar í botn! vona að gangi vel hjá þér í starfsnáminu sæta mín :)
knús
***

og hæ elsku svala :)
mikið er gaman að heyra frá þér og takk fyrir hamingjuóskirnar! vona að þið hafið það sem allra allra best ;)
***

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim