útskrift og 87% vegabréf
komiði sæl og blessuð :)
farið að verða ansi langt á milli blogga hjá mér...enda held ég bara svei mér þá að það sé ekkert að frétta af okkur...aldrei! reyndar var útskriftin mín um seinustu helgi...ég ákvað að skrópa í athöfnina, besta ákvörðun mín hingað til held ég barasta! hafði upplifað 4 klst leiðindi þegar óli útskrifaðist á síðasta ári og hreinlega bara nennti þessu ekki :) ég er engu að síður orðin hjúkrunarfræðingur...búin að sækja prófskírteinið og allt! annars er lífið okkar einhvernvegin á þennan veg: vinna og sofa þess á milli! óli tók sér þó frí eftir hádegi í gær og ég átti vaktafrí...ótrúlegt hvað manni færist mikið úr hendi þegar maður hefur tíma til útréttinga svona á virkum degi. meðal annars sótti ég um nýtt vegabréf fyrir krítarferðina okkar ;) þetta er allt orðið svo strangt og speisí maður! fyrst lét ég taka af mér passamynd á hlemmi, og nú eru þær sendar til ríkislögreglustjóra í tölvupósti. svo fer maður þangað, þar er tekin önnur mynd af manni sem reiknar út beinin í andlitinu! það kom í ljós að ég er einungis 87% lík sjálfri mér á milli mynda...þó nóg til þess að mér væri trúað...að sögn konunnar :) strange! 9/11 búinn að breyta ýmsu!
5 Ummæli:
hehe.. 13% ekki þú?? semí sick/næs?
já, þetta er pínu fyndið sko! vorum einmitt að spá hversu mikil % óli er ég :)
***
Hæ sæta bara segja hæ ;)
kiss og knús
kv Sara Natasha
Halló gott fólk.
Fyndid tetta med vegabréfid.
Styttist í ferdina ykkar gódu. Tad er gott. Vid erum komin heim úr okkar. Mesta yndi ever og of fljótt ad lída! Samt ekkert slæmt ad koma heim í sól og blídu í køben. Erum bara á strøndinni hér í stadinn.
knús og kossar,
***
hæ sara mín
alltaf gaman að heyra frá þér skvís :)
og íris mín
voða er gott að fá þig aftur í bloggheiminn...hann er ekki eins án þín! gott að allt gekk vel hjá ykkur ;) ójá, stutt í okkar ferð...mmmm! hafið það gott!!!
knús
***
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim