föstudagur, apríl 21, 2006

ég er alveg að fara að verða hjúkka

oh, yndisleg tilfinning :) síðasta prófið í hjúkrun EVER er yfirstaðið!!! Þær kennarastöllur í deildinni kvöddu okkur sem búin erum í dag með stæl get ég sagt ykkur, úff...hef sjaldan baslað við eins erfitt próf...enda ekki mikil áhugamanneskja um hjúkrunarstjórnun! held samt og vona að þetta hafi gengið sæmilega! fór svo upp á sængurkvennadeild til þess að skrifa undir áframhaldandi vinnu þar, sem hjúkrunarfræðingur, vona að ég fái að vera allt næsta ár! besta deild sem ég hef unnið á!!! er annars í ansi miklu spennufalli og veit ekki hvort ég er þreytt eða upptjúnuð, allt í rugli í höfðinu á mér eins og er! sendi baráttukveðjur til þeirra sem eiga barnahjúkrunina eftir á mánudaginn...myndi ekki vilja vera í þeirra sporum ;) nú tekur við yndislegur tími hvíldar og skemmtunar (og reyndar lokaverkefnis)...rækta vini og vandamenn og Óli endurheimtir geðgóðu kærustuna sína á ný! :) verð að segja að hann er búinn að vera yndislegur við mig í þessari prófamyglu...vissi að ég ætti besta mann í heimi en þetta sló nú öll met!!! Matur hjá pabba í kvöld og kannski eins og einn eða tveir bjórar ;) love it!
góða helgi, Hrafnhildur

3 Ummæli:

Þann 2:20 e.h. , Blogger Inga sagði...

Til hamingju með að vera búin :o)

Nú tekur við verðskuldað líf kæruleysis og gleði ;)

knús
Inga

 
Þann 4:48 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

takk Inga mín :)
knús til baka, vona að heilsan sé betri!!!
***

 
Þann 10:55 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera búin með prófin. Öfunda þig ekkert smá. Gangi þér vel í lokaverkefninu:)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim