föstudagur, október 26, 2007

YNDISLEGT :)

mín elsta og BESTA vinkona á von á litlum ljósgeisla næsta vor! :) elsku Íris Þöll mín og Navid! Innilega til hamingju! þið verðið sko flottir foreldrar!!! ekki amalegt að vera í ljósunáminu núna! bara að hún væri pínu nær mér...en ég sé hana, eiginmanninn og bumbuna um jólin ;) get varla beðið!

sæta og sæti :)

góða helgi!

mánudagur, október 22, 2007

það er nú...

...ekki mikið að frétta héðan úr skaftahlíðinni (þó fréttir stöðvar 2 hafi endalaust mikið að segja - nenni ekki að blogga um pólitík)

alltaf alveg fáránlega mikið að gera í skólanum! hefði bara ekki trúað því að óreyndu!!! í síðustu viku voru 3 verkefnaskil og í þessari tekur anatómían við með prófi 2. nóv...semsagt lítill tími fyrir mikið efni - mjaðmargrindin, bein, vöðvar, liðbönd, æðar og taugar, leg, þvagblaðra og ristill, fylgjan og fóstrið...úff! ég er sennilega að gleyma einhverju...en ég tóri því þetta er allt saman áhugavert! tek mína eigin meðgöngu-og fæðingarskýrslu reglulega fram...skil alltaf meira og meira í henni :) gaman að þessu!

jólafrí 10 des...ÆÐI!

OG taka á móti börnum í byrjun janúar :) trúi því varla ennþá að ég sé loksins komin í þetta nám...svo gaman ;)

laugardagur, október 13, 2007

þessi ungi maður...

...er orðinn 8860gr og 74cm...
svo stutt síðan hann var í bumbunni!

sunnudagur, október 07, 2007

nýjar myndir :)

jæja, það er komið nýtt septemberalbúm! njótið vel :)
eigið góða viku!